LyricFind Logo
LyricFind Logo
Profile image icon
Lyric cover art

Ég lifi í draumi (Eg lifi i draumi)

Apple Music logo
Deezer logo
Spotify logo
Lyrics
Ég lifi í draumi
Dreg hvergi mörkin dags og nætur
Sveiflast aðeins ósjálfrátt
Í hægum gangi
Á fullt í fangi með að finna það
Sem oftast reynist öfug átt
Það er líkt og ég sé laus úr öllum viðjum
Lentur hringsólandi á vegi miðjum
Ég lifi í draumi
Dreg hvergi mörkin dags og nætur
Sveiflast aðeins ósjálfrátt

Ég lifi í tómi
Tek engan þátt í trylltum dansi
Fólksins allt í kringum mig
Aleinn á randi
Veit að minn vandi er að vera þar
Sem enginn getur áttað sig
Það er líkt og ég sé lagstur út í bili
Leitandi að bát á réttum kili
Ég lifi í tómi
Tek engan þátt í trylltum dansi
Fólksins allt í kringum mig

Ég lifi í veröld
Veit ekki hvaða vindar þjóta
En þeir fara fram hjá mér
Eins konar fangi
Á víðavangi eða varnarlaus
Gegn því sem er á meðan er
Það er líkt og ég sé lamaður af ótta
Líf mitt rennur burt á hröðum flótta
Ég lifi í veröld
Veit ekki hvaða vindar þjóta
En þеir fara fram hjá mér

WRITERS

Adalsteinn Asberg Sigurdsso, Eyjolfur Kristjansson

PUBLISHERS

Lyrics © Warner Chappell Music, Inc.

Share icon and text

Share


See A Problem With Something?

Lyrics

Other