Þeir lemja á fólki og traðka á vonum
Þeir níðast á hinsegin fólki og konum
Og sjá þarna stendur bónaður bíllinn
Í fatlaðra stæði, þetta er fávitaskríllinn
Þeir rúnta á grasi og troðast í röðum
Þeir fordómum dreifa á fávitastöðum
Þeir dýrka hvor annan og digur er barki
Með kjaftinn í fimmta og heilann í parki
Þeir nauðga og hata og benda á aðra
Í kommentakerfum þeir bulla og þvaðra
Bitrir og lúnir í heimskunni dúsa
Þeir frekir og fúlir og kunna ekki að knúsa