Hann hefur lifað hér í fjöldamörg ár
Hann á eitt frímerkjasafn, hann er með bringuhár
Hann elskar barþjóna og barnahjal
Hann er Hemúllinn sjálfur úr Múmíndal
Hann er kominn, hann er hér
Hemúllinn er mættur til að skemmta þér
Hann er kominn, hann er hér
Hemúllinn er mættur til að skemmta þér
Hann hefur margvísleg áhugasvið
Hemúllinn er ekkert lamb til að leika sér við
Hann talar sannleika og ekkert bull
Og hann er margfrægur stóðhestur og kvennagull
Hann er kominn, hann er hér
Hemúllinn er mættur til að skemmta þér
Hann er kominn, hann er hér
Hemúllinn er mættur til að skemmta þér
Hann er kominn, hann er hér
Hemúllinn er mættur til að skemmta þér
Hann er kominn, hann er hér
Hemúllinn er mættur til að skemmta þér
Hann hefur þjóðina í hendi sér
Hann er starfsmaður opinber
Hann er gangandi vinnuslys
Og hann hlustar á Forgarð Helvítis
Hann er djákni úr Hörgárdal
Hann þjálfar áttunda flokk í Val
Hann drekkur bara sambúkka og séniver
Hemúllinn er mættur til að skemmta þér