Leitaði lengi um saltan sæ
Langir dagar með þungum blæ
Hann hefur á haföldum gengið um nætur
Á Golgata við krossinn stóð
Í mannkynssögunni fest hefur rætur
Hann lifði af plágur, hann lifði af stríð
Við Hitler hann barðist í denn
Í Transylvaníu hann blóðsugur barði
Og heillaði þar alla menn
Hann heilsaði Lincoln og bætti um betur
Í Rússlandi Raspútin skaut hann um vetur