Í Scarpa-skónum hjörtun örar tifa
Gráhært fólk að slagga, njódda og lifa
Af kakói og svetti viljum meira
Í Primaloft í Teslu úti að keyra
Núvitundarskíðaferð ég þrái
Markþjálfun og hjólreiðar ég dái
Farmers Market gjöf á ég að gjalda
Creepy vibes á veiðum inni á Kalda
Þynnkan hún er þriggja daga
Sköllóttur með slappan maga
Bakverkur í hverju skrefi
Hér er hætt að rísa landið
Búinn að opna hjónabandið
Með gráan fiðring fer í frakkann
Kominn fram á grafarbakkann