Borgin nærist á lygum og prettum
Göturnar þaktar í tyggjóslettum
Krotið á veggjunum kólnar með hraði
Rónunum veitti nú ekki af baði
Brjálaðir bílstjórar keyra og klessa
Guð hefur gleymt þessa borg að blessa
Við höldum í vinnu sem liðin lík
En hvað ég hata Reykjavík
Fjölskyldur húka í leiguholum
Veipandi gaurar í hlýrabolum
Í rigningunni er enginn glaður
Í Borgartúni er bissnesmaður
Sem kíkir á klósett með duft í bréfi
Hugsunin magnast í hverju skrefi
Er geng ég um götur og úfið hjarn
Fólk í stöflum í ógnarblokkum
Vælandi krakkar í vinnuflokkum
Umferðarteppa og mávaskítur
Kuldinn hann kýlir mig, stingur og bítur
Norpandi túristar, kvölin og pínan
Og hvenær kemur Borgarlínan
En hvað ég hata Reykjavík