Hvarfla vildi að gamni sínu
En hann féll í faðminn þinn
Nett eru möskvar riðnir saman
Svo það höndlar hjartað mitt
Og hugrenningar allar saman
Logi sem ég einn mun kenna
Fjaðrir mínar allar brenna
Hugsaðu ei mín hjartans mey
Úr þínu hjartans ástarneti
Enginn möskvi í því brást
Allir hnútar þess úr dyggðum
Það er spunnið allt úr ást
Og svo niður kljáð í tryggðum
Logi sem ég einn mun kenna
Fjaðrir mínar allar brenna
Hugsaðu ei mín hjartans mey
Úr þínu hjartans ástarneti