Fölgrátt flúorljósið flæðandi niður vegginn
Tómlegur máninn læðist gráleitur um skýin
Starandi augu undan gluggakistu fá hlýju
Hlýju að innan, innan við glugga
Hversdagsleg andlit eru arkandi niður götur
Kuldaleg kona kemur gangandi svo döpur
Haustið er komið, sumarið er að kveðja
Vetur og vorið saman þau leiðast
Sit úti í glugga horfi á laufin falla af trjánum
Fuglar sig búa burt af landinu brátt fljúga
Fljúga að heiman, heiman í leit að vori
Skilja mig einan, einan á landi
Leita að löndum í því flugi
Sit úti í glugga, horfi á laufin falla af trjánum
Fuglar sig búa burt af landinu brátt fljúga
Haustið er komið sumarið er að kveðja
Vetur og vorið saman þau leiðast