Sólin hún lætur þér líða vel
Fólkið á fætur eldsnemma fer
Er sést til sólar, fólk fer á flipp
Sólborð og stólar, það gefur mér kikk
Þegar sólina það loks sér
Fólk fer á rúntinn í spánýjum bíl
Með kortabúntin og fötin í stíl
Stoppaðu þarna, í plastkortasport
Við verslum við Bjarna, með frípunktakort
Höldum plastkortaplánetu jól
Sólarstrendur með Whisky og bjór
Kortanýlendur og gleðileg jól
Verum saman, hér erum við
Ef endar ná saman, fram á næsta kortatímabil
Kaupum hér kannski sumarhús
Þetta er plastkortaplánetu blús
Kaupum hér kannski sumarhús
Þetta er plastkortaplánetu blús