Fór án þess að kveðj með sínar vélar og rær
Bryggjan bátavana, kvótinn minning ein
Fjörunni leifar af bát fuglar og bein
Unga fólkið er fyrir sunnan að dreyma gamla fólkið situr eftir heima
Minningar útá fjörðin streyma
Fjallahringurinn er orðinn einskonar múr
Part úr vetri nær sólin aldrei að skína
Á fjörðin og ljósið er vart sjáanleg lína
Ungafólkið er fyrir sunnan að vinna
Gamla fólkið varð eftir með nál og tvinna
Útá fyrði er enga drauma að finna
Húsin kostar nokkrar dánar krónur
Kannski er hægt að rækta úr þeim feitar jónur
Leikskólinn geymir bergmál hrópandi barna
Sem í borginni segja ég fæddist þarna
Sem ekkert ungt fólk finnst lengur
Bara gamalt lið og naktar fána stengur
Á landi er víst enginn happafengur
Bankakerfið fyrir sunnan féll með látum
En fimtán árum fyrr hjá okkur útaf bátum
Sem voru keyptir en kvótinn seldur suður
Þar sem bankamenn átu gullhúðaðar kruður
Unga fólkið fór suður til að dreyma
Um gullið sem enginn átti heima
Og gammar yfir gömlu fólki sveima
Fjöllin þau standa stara útá fjörðinn
Þorpið er að sökkva hægt oní svörðinn
En ég ætla að reyna rembast eitthvað lengur
Því konan mín er ólétt það er sagt víst drengur
Hér vil ég vera hér á ég heima
En tækifærin virðast burtu bara streyma
Það er ekkert rangt við það að dreyma
Að þorpið mitt það hjarni við
Hér vil ég vera hér á ég heima
En tækifærin virðast burtu bara streyma
Það er ekkert rangt við það að dreyma
Að þorpið mitt það hjarni við