Þú skrappst út og ég skrapp aftur saman
Ég vildi að við værum alltaf saman
Þú kallar á og kyssir mig
Heimur horfir á mig hnigna
Í næsta skrefi veruleikans
En veruleikur visnar skjótt
Í hugarheimi sárrar sálar
Ég þykist stara gluggann á
En hann starir víst á mig
En einhvernveginn virðist ekkert verða afturkvæmt
Og einhvernveginn virðist ekkert verða afturkvæmt
Við og við, við sátum átum hjörtu okkar saman
Þú skrappst út og ég skrapp aftur saman
WRITERS
Barði Jóhannsson, Laufey Soffía Þórsdóttir, Margrét Rósa Dóru-Harrysdóttir, Sólveig Matthildur Kristjánsdóttir