LyricFind Logo
LyricFind Logo
Profile image icon
Lyric cover art

Hvað Ef...?

+3 Others

Apple Music logo
Deezer logo
Spotify logo
Lyrics
Um lífið arka mennirnir og leitast við
Að lifa því eins vel og þeim er unnt.
Víst er þó að valt er lánið,
Vindar geta blásið mjög.
Allir ganga í gegnum þykkt og þunnt.

Í hverju höfði kúrir ögn af eftirsjá
Og hvarvetna við stígum villuspor.
Ósögð voru orðin nokkur,
óteljandi mistökin.
Bara að aftur komið væri vor.

Hvað ef hefði ég tjáð mig um
Tilfinningar mínar áður fyrr?
Hvað ef ég hefði talað út,
Tekið kannski meiri þátt,
Brugðist við á annan hátt?

Það vera má að væri margt með öðrum blæ
Og veruleikinn annar en í dag,
Hefði tíminn hinkrað stundum,
Heldur en að líða ótt.
Allt í einu er komið sólarlag.

Hvað ef hefði ég tjáð mig um
Tilfinningar mínar þá og þar?
Hvað ef ég hefði talað út,
Tekið kannski meiri þátt,
Brugðist við á annan hátt?

Allt fram streymir,
Elfi gleypir sær.
Niða ósar
Nú, eins og endranær.

Hvað ef hefði ég tjáð mig um ....
En hvað tjáir að sýta nú,
Svekkja sig á því sem liðið er?
Það er aldrei um seinan að
Sigla út á hafið blátt,
Taka sjálfan sig í sátt.

PUBLISHERS

Lyrics © TUNECORE INC, TuneCore Inc.

Share icon and text

Share


See A Problem With Something?

Lyrics

Other