LyricFind Logo
LyricFind Logo
Profile image icon
Lyric cover art

Hve Glöð Er Vor Æska

•

1990

Ofboðslega frægur (Ofbodslega fraegur)

Apple Music logo
Deezer logo
Spotify logo
Lyrics
Hann er einn af þessum stóru
Sem í menntaskólann fóru
Og sneru þaðan valinkunnir andans menn
Ég sá hann endur fyrir löngu
Í miðri Keflavíkurgöngu
Hann þótti helst til róttækur og þykir enn
Já hann er, enginn venjulegur maður
Og hann býr, í næsta nágrenni við mig
Og hann er alveg ofboðslega frægur
Hann tók í höndina á mér, heilsaði mér
Hann sagði, "Komdu sæll og blessaður"
Ég fór gjörsamlega í hnút
Hann sagði, "Komdu sæll og blessaður"
Ég hélt ég myndi fríka út
Hann hefur samið fullt af ljóðum
Alveg ofboðslega góðum
Sem fjalla aðallega um sálarlíf þíns innri manns
Þau er ekki af þessum heimi
Þar sem skáldið er á sveimi
Miðja vegu milli malbiksins og regnbogans
Já hann er, enginn venjulegur maður
Og hann býr, í næsta nágrenni við mig
Og hann er alveg ofboðslega frægur
Hann tók í höndina á mér, heilsaði mér
Hann sagði, "Komdu sæll og blessaður"
Ég fór gjörsamlega í hnút
Hann sagði, "Komdu sæll og blessaður"
Ég hélt ég myndi fríka út

Við ræddum saman heima og geyma
Ég hélt mig hlyti að vera að dreyma
En ég var örugglega vakandi
Mér fannst hann vera ansi bráður
Hann spurði hvort ég væri fjáður
Og hvort ég væri allsgáður og akandi
Já hann er, enginn venjulegur maður
Og hann býr, í næsta nágrenni við mig
Og hann er alveg ofboðslega frægur
Hann tók í höndina á mér, heilsaði mér
Já hann er, enginn venjulegur maður
Og hann býr, í næsta nágrenni við mig
Og hann er alveg ofboðslega frægur
Hann tók í höndina á mér, heilsaði mér
Hann sagði, "Komdu sæll og blessaður"
Ég fór gjörsamlega í hnút
Hann sagði, "Komdu sæll og blessaður"
Ég hélt ég myndi fríka
Hann sagði, "Komdu sæll og blessaður"
Ég fór gjörsamlega í hnút
Hann sagði, "Komdu sæll og blessaður"
Ég hélt ég myndi fríka út

WRITERS

Thordur Arnason, Jakob Frimann Magnusson, Egill Olafsson

PUBLISHERS

Lyrics © Warner Chappell Music, Inc.

Share icon and text

Share


See A Problem With Something?

Lyrics

Other

More From This Album

Lyric cover art

Hve Glöð Er Vor Æska

1990

01

Kolbeinsvaka

Stuðmenn

02

Berum út dívanana

Stuðmenn

03

Sumar í Reykjavík

Stuðmenn

04

Ofboðslega frægur (Ofbodslega fraegur)

Stuðmenn (Studmenn)

05

Það er enginn vafi (að hann er orðinn afi)

Stuðmenn

06

Færið mér aspirín

Stuðmenn

07

Íslensk fyndni

Stuðmenn

08

Ég verð að prófa þetta aftur

Stuðmenn

09

Hingað og ekki lengra

Stuðmenn

10

Víetnam

Stuðmenn

11

Brattabrekka

Stuðmenn

12

Auga fyrir auga

Stuðmenn

From This Artist